Sigrún Lilja

12.07.2008 00:39:03 / sigrun-lilja

Gamalt húsráð um ísbirni :)


Ófeigur ísbjarnarhræða
Nú þegar ísbirnir eru í vaxandi mæli farnir að ferðast til landsins er ekki úr vegi að rifja upp gömul húsráð af Ströndum um hvernig best er að bregðast við þegar maður rekst á ísbjörn á förnum vegi. Helsta bjargráðið mun vera að hlaupa eins og fætur toga og koma sér inn í hús hið snarasta. Heppilegt getur verið að vera þá jafnan í samfylgd með einhverjum sem hleypur hægar en maður sjálfur. Annað heillaráð sem öllum börnum á Ströndum er ungum kennt, er að vera ávallt í úthverfum fingravettlingum þegar hafís liggur við landið eða þegar birnir eru á ferðinni.

Þegar ísbjörn kemur síðan æðandi á eftir manni er best að taka strax á rás til bæja, en klæða sig úr öðrum úthverfa fingravettlingnum á hlaupunum. Þegar maður er farinn að heyra andardráttinn í birninum fyrir aftan sig á maður að fleygja vettlingnum yfir öxlina og hlaupa áfram sem fætur toga. Sest þá ísbjörninn undantekningarlaust niður og snýr öllum þumlunum við, áður en hann heldur áfram að elta mann. Síðan gerir maður það sama með hinn vettlinginn og sleppur í skjól meðan bjössi baksar við þumlana.

Víða á Ströndum hafa verið settar upp svokallaðar ísbjarnarhræður meðfram ströndinni og á meðfylgjandi mynd má sjá Ófeig ísbjarnarhræðu sem vaktar Steingrímsfjörðinn. Virðist þetta hafa skilað góðum árangri, því allir ísbirnir sem stigið hafa á landi síðustu 20 árin hafa komið á land hinu megin við Húnaflóann.


Fannst bara betra ef þið gætuð reddað ykkur ef þið mynduð mæta einum í leið í fríið :)



Sigrún Lilja

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 13:55:45 / sigrun-lilja

Álfkonan :)

Sólveig hélt því nú fram í gær, að það væri ekki fjallkona, það væri álfkona :)
Jújú. Það var 17.júní í gær. Sem sagt frídagur. En nei, ekki svaf ég út, ég vaknaði klukkan 10 ! Það er ókristilegur tími. En 3.fl. var að sjá um kaffihlaðborð. Ég vil meina að ég + Sólveig höfum verið aðalmanneskjurnar þarna með vasareiknanna :)

Hehe.. alltaf gaman á 17.júní.

En ég & Líney erum byrjaðar að vinna á Leikskólanum. Það er bara rosalega fínt, krúttulegir krakkar og svona. Áslaug spurði mig akkúrat um daginn, "er bara hverjum sem er leyft að vinna þarna,  er foreldrum bara alveg sama um börnin sín." haha.. Húmor í kjellu :)

Er að fara að keppa á eftir. Völsungur - Tindastóll í bikar.. Stressið er svona farið að gera vart við sig í litla mallakútunum, en síðustu leikir okkar hafa ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir .. Haha.. en það hættir núna.

Það eru nákvæmlega allir úti eða að fara út núna. Líney er að fara til Dk. Brynja er í Dk. Íris er í Törkey. Sólveig er að fara þangað. Sæunn að fara til Belgíu eða Búlgaríu eða eitthvað. Þura að fara til Englands.
Allir neeeeeema ég .. Haha.. langar pínu að liggja á sólarströnd og næla mér í smá tan..Veitir nú ekki af ! En það stefnir nú allt í fínansta sumar hérna á fróni :)

En það sem þetta er nú búið að vera mestmegnis bull þá ætla ég nú bara að kveðja :)

sól&sumarkveðja

Sigrún Lilja


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 20:53:00 / sigrun-lilja

Textar : )

Dvel ég í draumahöll - Dýrin í Hálsaskógi.

Dvel ég í draumahöll
og dagana lofa.
Litlar mýs um löndin öll
liggja nú og sofa.
Sígur ró á djúp og dal,
dýr til hvílu ganga.
Einnig sofna skolli skal
með skottið undir vanga.

Syndir Feðranna - Bubbi Morthens.

Hann hef ég elskað frá fyrstu stundu
frá fyrstu mínútu í lífi hans.
En syndir feðranna drenginn minn fundu
og færðu honum að gjöf ólukkukrans.

Sonur minn er ekki illur maður
engin sál veit sinn lífs veg.
Sem lítill drengur var hann góður - glaður
nú græt ég hans örlög  - hryggileg.

Blackbird - The Beatles.

Blackbird singing in the dead of night
Take these broken wings and learn to fly
All your life
You were only waiting for this moment to arise

Black bird singing in the dead of night
Take these sunken eyes and learn to see
all your life
you were only waiting for this moment to be free.

Lullaby - Billy Joel.

Good night my angel time to close you eyes
And save these questions for another day
I think I know what you've been asking me
I think you know what I've been trying to say.

Í grænum Sjó - Litla Hafmeyjan

Í grænum sjó. Í grænum sjó.

Hér áttu heima,

hættu að dreyma, hlustaðu á mig.

Uppi þeir streða títt og ótt.

Slíta sér út af fram á nótt.

Á meðan við fljótum

og skjótum með rótum.

Í grænum sjó.

 

Hér er alltaf allt í standi

og eilífur fiskafans.

En þorskar á þurru landi,

þeir gera þar stuttan stans.

Þeir lenda í þröngum búrum

og enda á einum stað.

Á diskum hjá svongu fólki.

- Þú ættir að reyna það - ónei


Kóngur einn dag - Maggi Eiríks & Helgi Björns.


Allt mitt líf er andartak í tímans hafi
og öll mín tár þar týnast eitt og eitt
                      Kóngur einn dag þann næsta ert á bólakafi               
                         þú reyndir sund sem þýðir ekki neitt.                  
Og eftir situr sársaukinn,
                            og stundum soldil hamingja.                    
                           Ef þú skyldir finn' ana                      
            í öllum bænum grípt' ana.
                      

Bara alls konar textar sem mér finnst flottir :)

Sigrún Lilja

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 22:23:57 / sigrun-lilja

Afmæli :)

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Sylvía Dögg
Hún á afmæli í dag


Til hamingju með daginn elskan ;*

--
Sylvía Dögg var fædd á þeim herrans degi 8.maí 1992.
Hún hefur frá þeim degi verið frekar yndisleg manneksja og skemmtileg með eindæmum  (: Passið ykkur samt að það er ei skemmtilegt að týnast með stöllu, þá verður hún með eindæmum pirruð.. sem betur fer týnist maður ei með henni á hverjum degi (: Hehe, þarf bara að stríða þér á þessu (:




» 6 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 21:23:55 / sigrun-lilja

að læra..

Þetta er ekki gaman. Læra fyrir próf á sunnudagskvöldi. Á það neflinlega til að nenna að ekki að læra fyrir próf, svo kemur maður í prófið setst niður og þá bara shit! afhverju lærði ég ekki.
Eeeen þýðir ekkert að röfla um það, þessi blessuðu próf koma nú samt ;)

En veðrið, er þetta eitthvað grín. Þarsíðasta föstudag labbaði ég um bæjinn í kjól og leggings á fullu í tan-verkefninu. Núna sit ég undir teppi og horfi út og það er snjór í fjallinu. Þetta er nú bara ekki normal ástand hérna. Langar pínulítið að sitja á strönd í einhverju framandi landi með sólgleraugu og sólarvörn að vopni gegn steikjandi hita!!

Úff, hvað á maður af sér að gera í sumar. Ekki komin með neina vinnu ;S ætli maður endi ekki bara í bæjarvinnunni með núll & nix á tímann, hálf oní blómabeði í grenjandi rigningu.
Hehe, það er án efa toppurinn ;) Svo gæti ég náttúrulega farið til New York og unnið sem gluggaþrífingamaður á háhýsinum, tek mig án efa vel út hangandi í 100 metra hæð að þrífa gler. Eða verið manneskjan sem straujar skóreimarnar þínar áður en þú kaupir þær.
Nei, þá er ég nú bara nokkuð sátt með bæjarvinnuna :)

Always look on the bright side of life :)

Sigrún Lilja


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 18:09:48 / sigrun-lilja

Afmæli (;

Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli hann Arnþór
Hann á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið Kútur;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 21:35:59 / sigrun-lilja

TólftiApríl Tvöþúsundogátta.

Sjá kelluna. Situr hér og bloggar, vegna stórrar áskorunar frá Ingvari Berness.
Jáhá. Ingvar. Var að passa Emelíu Ósk í gær, hún var að skoða jólakortin sín. Sá kortið frá þér, öskraði INGVAR BERNESS ER MEÐ DUDDU.. svo spurði ég kjellu hvort að Ingvar væri smábarn. Hún sagði "já". Ég hló (:

Annar er allt á fullu núna. Eins og það á að vera. Búin að vera að taka þátt í uppsetningu leikritsins Einu sinni var, hjá Leikfélagi Húsavíkur. Það er tær snilld.
Ótrúlega frábær félagsskapur! -oftast.
Hehe, ekki frá því að ég sé lögð í smá einelti, bæði vegna hávaða sem er sagður koma frá mér, og einnig vegna fjölskyldu minnar.
"Mímímí Gunnþór"
"Gvuð, á ekkert að setja á þig hljóðkút"
"Verðuru aldrei þreytt ?"
Svo er ussið OFNOTAÐ hjá Kidda Lú & Lexa.

Svoltill hlakkingur í manni, útaf lokaparýinu.. verður gaman þar eða ?
Ég veit allaveganna að ég ætla að skemmta mér :)

Samræmduprófin að koma. Enskan er 30. Apríl. Núna verður maður sko að fara að læra. Shit hvað tíminn líður hratt! Svo er bara svona einn og hálfur mánuður í fyrstu leiki sumarsins. 3ji flokkur kvenna á fyrsta leik 25. maí. Þetta er allt að bresta á.
Svo átti ég akkúrat afmæli um daginn. 6. apríl reyndar. Var bara hinn besti dagur sko ;) Talandi um að ég & Íris höfum djúsað pínu þá eða. Dönsuðum eins og vitleysingjar allt kvöldið :)

Annars er bara partý í sminkstónum á mánudaginn anna eða ?

Sigrún Lilja


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 17:38:23 / sigrun-lilja

"Hvert er leyndarmálið við að fylla pottinn af vatni ?"

Þetta er eiginlega búin að vera snilldar helgi.
Fórum á föstudaginn á leikritið; Kardemommubæinn. Það var alveg hrillilega gaman. Alveg snilldar vel gert:d. Við, Keldulingar skelltum okkur. Kristjana María er án efa með snilldar hlátur.

Svo í gær þá fórum ég & Karen á Snjócrossið uppá Mývatni. Fórum á Trausta. Þetta var snilld, gott veður og spennandi keppni:)
Festum okkur ekki nema þrisvar + svo var ekkert klósett þarna. Ég og Karen vorum í spreng allann tímann, hehe, svo var alveg svaka spyrna við snjósleðagæja á leiðinni heim. hehe.
Eftir það var skellt sér á Sölku með Írisi + Líney + Sæunni + Þuru. Fengum okkur afar ljúfenga pizzu. Svo héldum við heim til Írisar í pottinn.. umm það var illa gott.. en það gekk nú ekkert of að græja pottinn. Kalda vatnsslangann var pikkfrosin, við þurftum að þyða hana, eftir það fór hún að sprauta ísmolum.
Ég og Íris mjög vel gefnar manneskjur! græjuðum pottinn og létum renna í hann og svona. Svo kemur Íris "Sigrún, veistu hvað er leyndarmálið við fylla pottinn af vatni?" AÐ HAFA TAPPANN Í!!
þá höfðum við gleymt að setja tappann í.
Það var ekki búið enn.. Þetta átti að vera svona smá veisla fyrir Þuru, því að hún er orðin 15, og við vorum búnar að kaupa svona kerti sem stóð "15" á. Þau týndust, við leituðum allsstaðar, lugum öllum andskotanum í Þuru því hún mátti ekkert vita. En þau fundust nú á endanum.
Takk fyrir yndislega skemmtilegann dag stelpur <3

Sigrún Lilja


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 21:59:08 / sigrun-lilja

Gerandinn er Idolið, fyrir fokkin eineltið og öllum finnst það sniðugt nema barnið sem að meiðir sig

Já. Þetta er okkar besta lag.. allaveganna erum við Sylvía að fíla lagið Unglingar í tææææætlur þessa dagana.

Er búin að vera á Ak. um helgina, það var reyndar snilld! Fór á skauta með Ásrúnu & Sylvíu, vorum þokkalega svalar á skautadiskói, að brillera á skautum, gleymum því ekki.
Eða reyndar voru það Ásrún & Sylvía sem voru að brillera á skautunum, ég var ekkert of góð á þessu drasli.. En meina einhver verður að sjá um dettin ?
Í þetta sinn var það ég, en er nokk viss um að það verði Sylvía næst, jafnvel Ásrún, aldrei að vita á hverju hún tekur uppá (enda kann manneskjan ekki að perla!)
Skelltum okkur einnig í bíó, á Step up II.. Já, rosa góð mynd bara.. geðveikur dans of course, og aðal kallinn var ekkert slor.
En á milli þess sem við vorum að detta á hausinn á skautum og gera okkur að fífli í bíó þá vorum við nú bara að þjálfarast, lærðum alveg heilann helling;)
En eruði ekki alveg örugglega hamingjusöm ??
Nei, bara svona að vera viss, ef þið eruð ókunnug (Snæfríður.. hehe)

En allaveganna þá er ný skólavika að byrja á morgun, eeeein í viðbót.. þær eru endalausar!! eeeeen þetta er víst ekki alslæmt, nei, það er sko ekkert betra en Brynhildur Þráins og Jón Höskulds á mánudegi ;)

Ehhe, mér finnst karlpeningurinn ekki alveg vera að standa sig í að bjóða manni gleðilegann konudag, bara búin að fá x3 "til hamingju með daginn" ..aha  slæææææmt, eeen ég jafna mig, pínu bitur samt en.

En þar sem ég heyri einhverja manneskju vera að röfla hérna um að ég þurfi að taka uppúr töskum, þá er víst best að fara að drulla sér í það, áður en fyrr nefndur aðili rífur af manni tölvunna, eða eitthvað þaðan af verra..
Annars var ég alveg guðslifandi fegin að komast í MySpace áðan, ekkert búin að fara inná það síðan á föst. Ég og Sylvía gerðum nokkrar árangurslausar tilraunir til að komast inná netið á Ak. en lukkan var sko aldeilis ekki með okkur í þau skipti..


Sigrún Lilja



» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 18:05:52 / sigrun-lilja

KORMÁKUR!!

Loksins komin heim, eftir snilldar ferð til Lauga í Sælingsdal! Það var illa gaman.. væri ekki til í að hafa misst af þessu..
dagsskráin var eitthvað á þessa leið;
Brunað um landið þvert og endilangt þangað til að áfangastaðnum var náð. Komið sér fyrir, allir frekar feimnir og krúttulegir samt. Heheh.. fengum klárlega besta herbergið 313.. Þetta ákveðna kvöld ákvað ofninn í þessu heittelskaða herbergi að vera með einhvern derrring!! Það var eitthvað ógeðisvatnsgult í honum!
Sumir áttu erfiðara en aðrir að díla með það!! hehe, verð að segja eins og er.. er ekki mikið fan á OFNAHÁFAÐA!! En einning skellti við herbergisfélagarnir (moi + Brynja + Líney) í sælgætisgerð.. Þar á ég svo sannarlega framtíð fyrir mér.
Einnig lögðum við stöllur fyrir okkur, Ræðumennsku, auglýsingagerð, vil minna á að frábæra auglýsingin sem ég + Brynja + Líney + Frikki + Arnþór gerðum fékk 2. verðlaun í auglýsinga-keppninni!
Heimsóttum við líka Landnámskalla og var það hin mesta skemmtun, einngin var farið í óvissuferð, þar sem KORMÁKUR besti vinur var umtalaður :lol:
Dragshow-ið var líka snilld, hehe, þar sköruðu fram úr Bíoncí og ólafía.. hehe
eitt enn JÖRGEN OG JÓGA TÆRIR SNILLINGAR!!
svo var bara brunað heim eftir öll ósköpin, ég varð eftir á ak. því næst á dagskrá var þjálfaranámskeið hjá ÍSÍ, það var bara hin mesta skemmtun! Þar hvíldi nú samt á mér bölvun.. haha..
svo fórum við, ég + Sylvía Dögg + Karen B.E + Snæfríður í bíó á öntreisaböl! hehe ágætismynd það!

en allaveganna ætla ég bara að þakka all jú krakklings fyrir frábæra viku!!

Sigrún Lilja


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 17:56:49 / sigrun-lilja

Gaman á morgun ?

Ég myndi halda það !! Á morgun er sko Landshlutakeppni Samfés hér á Húsavík eins og bara allir vita;) En þetta verður mikið tjútt, pizza - Keppnin og svo Diskó með HeyWood.. Var bara farin að sakna kappans!;)
Líney & Davíð Helgi & Bóas & Hlynur & Kristján að fara að taka þátt í þessu fyrir Kelduna og þetta verður svo floooooott:haha:

 

Svo var búið að plana eitthvað geim heima hjá Írisi, en ég veit nú ekkert hvað verður úr því.. enda skítaveður.. Talandi um skítaveður, þá fór ég í sund í dag! Harkan sex. En þegar bekkurinn var búinn að labba alla leið útí sundlaug, segir Harpa sundkennari okkur það, að það sé ekki hægt að fara í sund, þannig að við fengum mjög kósíí pottatíma.. umm..

Gull & Silfur þema á Samfés.. er ekki alveg að fatta hvernig strákarnir eiga að ná að redda sér einhverju úr gulli eða silfri, en þeir koma okkur bara eitthvað á óvart.. haha.. Þeir geta neflinlega ekki verið í gull eða silfur geimveru leggings.. eða þeir geta það alveg - en efast um að það muni lúkka vel ;)

 

Svo er þetta lúkk nú alltaf klassík !

 

Sigrún Lilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 18:46:42 / sigrun-lilja

Batnandi manni er best að lifa.

...Talandi um batnandi menn, þá er ég sko komin ról.. búið að skera aðeins hér og kippa úr ýmsum hlutum, þessu svo tjöslað saman aftur og ég er bara better than ever !

Það er einhver ferðafílingur í mér þessa dagana. Langar einstaklega að komast úr kuldabolanum hérna fyrir norðan, sem hefur reyndar ekki náð að bíta mig enn, þar sem ég ligg undir sæng 24/7, í framandi sólskins-stemmingu! Rölta um í stuttbuxum og bikiníi, með ís í hendi, að vörka tanið ;)

Það væri nú alveg draumur að liggja núna einhversstaðar á strönd í Jamaica eða einhvesstaðar í fjandanum. Ekkert að læra heima (ekki að ég hafi gert mikið af því undanfarna daga), Enginn að segja manni að fara í úlpu & vera með vettlinga. Engar tær eftir að hafa labbað heim úr skólanum. Heldur bara djamm & djús, því að "á Spáni er gott að djamma & djúsa" *dreymir*

En maður verður bara að gera það besta úr þessum kulda hér, við búum nú á Íslandi, við hverju búumst við! Það er bara harkan sex hérna! Hehe, talandi um að gera það gott þá vorum ég, Brynja & Talvan alveg að "meika" það áðan.. Það gekk ekkert hjá okkur. Þessi talva er með mynd of her own. Hún lætur ekki stjórnast!

Ég er í blogg átaki, nei ekki þessu vanalega "ekki blogga oftar en einu sinni í viku" nei! því að nú er ég á þeim buxunum að ég ætla að vera duglegur bloggar.. sjáum hvernig það verður eftir mánuð..

Eeen eins og Brynja segir þá er batnandi mönnum best að lifa! með þessum orðum kveð ég hérna úr kotinu mínu í Lyngbrekkunni;)

 

Sigrún Lilja

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 20:04:50 / sigrun-lilja

Margblessuð!

Komiði margblessuð og sæl!

Ætli það sé ekki komið að fyrsta bloggi ársins.. Mér líst bara svona helvíti vel á nýja árið..

Það sem stóð uppúr á árinu 2007 var ;

*Þorrablótið sem bekkurinn var með, tær snilld !

*Að fermast, sem var reyndar bara frekara gaman.

*Að fara til Krítar og liggja eins og skata í hitanum.. umm

*Að fara til Danmerkur, það var eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert, félagsskapurinn var maagnaður !

*Árshátíðin var svooo skemmtileg, allir rosa fínir og svonna.. :)

*Leikritið, Biblía Unga Fólksins, váá, þetta var svo agalega gaman, sakna þess pínu.. umm

Og allar hinar stundirnar á árinu sem voru skemmtilegar.. umm.. sakna 2007 strax.. Reyndar fæ ég alltaf tár í augun þegar ártalið minnkar og það kemur nýtt, það er svooo sorglegt.. allaveganna finnst mér það..

En þar sem ég verð latari bloggari með hverju árinu sem líður, þá ætla ég að setja punkt á þetta blogg..

 

Sigrún Lilja

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 14:04:39 / sigrun-lilja

Gleðileg Jól allir saman

Ég ætla bara að byrja á að óska þér gleðilegra jóla og farsæls komandi árs;*

Ég er búin að liggja alveg ofan í Makkíntos baukunum yfir þessi jólin, já, þetta er slæmt..Jafnvel að það hafi nokkrar smákökur & nóa konfekt farið inn fyrir mínar varir :O

Þá er komið að tímamótum í mínu lífi.. Ég horfði á Lord of the Rings! Já, og líkaði svona líka ágætlega.. Alltof flókið..

Kallarnir heita Konunöfnum.

Vondu kallarnir heita of líkum nöfnum.. Saruman & Sauron

Og endirinn, ohh þetta var ekkert endir

En annars bara fínasta mynd

Svo er stefnan tekin á að klára síðustu 2 á Laugardaginn:O

En ég ætla bara að setja punkt hér á þetta blogg.

p.s. Takk fyrir allar jólagjafirnar & kortinn og allt ;*

SigrúnLilja

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 16:37:17 / sigrun-lilja

ó well, ó well

Jæja, þá eru prófin að skella á..

Sakna þeirra nú ekkert sérstaklega. Sit hérna og nota hvaða afsökun sem er fyrir að læra ekki. En maður verður víst að gera þetta, sit og læri í almennum leiðindum..

Úpps, þetta var víst AlmennStærðfræði.:$

En svona það sem ég er búin að gera síðasta sólarhring;

* Borða heilann poka af M&M

* Fara á KaffiHúsaKvöld í Keldunni eða CoffeeHouseEvening eins og ég kýs að kalla það, það var snilld;)

en ég nenni ei að blogga meir, stærðfræðin kallar, hringgeirarnir og þeir félgagar;)

sæl að sinni

Sigrún Lilja JólaSveinn

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
RSS tengill